Home alone

Nú ku aulinn ykkar vera ein heima (Lilja ekkert party). Ég veit ekki alveg hvað ég á að gera... ég er ein hérna, með ársbirgðir af núðlum, kattamat og kattasandi. Ég hef þó Paco, Nölu og Dorrit hjá mér, þó svo að Dorrit hafi rétt í þessu ælt á rúmið mitt... bastarður.
Talandi um bastarðinn Dorrit, þá er ég að spá í fá einhvern fola til að barna hana (þá fress ekki fola, foli er notað yfir sætan mann, eða karlkyns dýr). Hún er orðin 3 ára gömul og er enn hrein mey, það finnst mér ákaflega sorglegt, 3 sinnum 7 eru 21 árs! Almáttugur! Ekki vil ég vera valdur kynsvelts hennar. En að vísu fylgja greyinu margir gallar, hún er of smá, hún er flogaveik, hún er með frjókornaofnæmi og svo gæti ég talið lengra... en hún má ekki deyja hrein mey!
Svo er auðvitað myndbandið hennar Silvíu komið á veraldarvefinn http://www.b2.is/?sida=tengill&id=155765. Þetta er bara "möst sí" ef ég tala svona eins og hún.
En það er baðkar að öskra á mig, sjáumst! ;) ;);););) :** Tremma töffað!
Ykkar auli sem er afskaplega skítugur.

1 Comments:
Hi god ! IT´s jor feivorit pæörson in ðe vörld, silviá! jéah
Skrifa ummæli
<< Home