mánudagur, mars 20, 2006

Fyrsta færslan.


Ég veit ekki hvað ég hef haft margar bloggsíður í gengum ævina, en það skiptir ekki máli. Alltaf reynir maður að finna leiðir til þess að tjá sig, þetta mun vera leið númer 1000 hjá mér.

Ég hef verið slök við tjáningu, þó tók ég nokkur ágætis dansspor í morgun við No doubt, veit ekki hvort það flokkist undir tjáningu.

Ég er búin að vera ansi ringuð undan farið... ég veit eiginlega ekki hvað ég ætla að gera í lífinu svo er ég alveg óskaplega einmana, enn ein unglinga krisjan, hvenær hætta þær?

Ég var að teikna tré á borðið mitt, krossum puttana að ég geti þrifið það af.

Mamma fer til London næstu helgi og ég sé fram á afar rómantíska helgi hjá mér og Paco... video, súkkulaði, bein....

En þakka fyrir lesninguna.

Kv. Aulinn sem er í naflaskoðun.

p.s. með er mynd helgarinnar, af mér og Heklu í svaðalegu ástandi.

1 Comments:

Blogger Þarfagreinir said...

Velkomin á blogspot. Það er bestast, svo lengi sem færslur detta ekki út. *Bölvar í hljóði*

9:19 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home