fimmtudagur, júní 29, 2006

Ég þyki held ég bara bráðgáfuð.

Ég er gáfaðasta manneskjan sem ég veit um. Allt sem ég segi og geri er rétt.

Og ég efast ekkert um gáfur mínar þegar ég les sögur eins og þessar:

"Nanna og Sigrún voru niðrí tvisti(í eyjum) einhver kall var bara einhverað hnakkamellur.. Sigrún bara hmm.. Hnakkamellur.. Nanna(ég) bara ú Sigrún.. ég er hnakkamella.. Sigrún bara hvað er það?^o) ég bara haha mellur sem ríða bara hnökkum ... Sigrún hló ekki lítið og skrifaði þetta niður :) we "

"fokk sko 2 dagar til jola skiluru omgad..hlakka til en ekki samnt :O omgad sko herna veit ekkert kað eg a að skirfa meira en herna bra elska ykkur og kvittið i gestó sko "

"Það verður á laugardaginn og ég hlkka ógeðslega tilheiriðið það er búið að vera samt ömulegur dagur han getur ekki verið verri fyrir utan að ég fékk mér besta mat í heimi.Jér koma nokkrir púntar um hvað þetta er búið að vera leiðinlegur dagur urrrr 1. Það var hund leiðinlegt í skólanum 2. Það var leiðinlegasta fótbolta æfing í heiminum. 3. Bara mér leidist ekkert smá 4. Og svo að lokum hef ekki fleiri púnta Æ okkkey hef ekki meira að seiga sý you bæbæ kv ella babe"

Ég vil taka það fram að Aulinn á ekkert í þessum skrifum. Þessi skrif fundust við að skrifa gella/babe/hottie og þess háttar fyrir aftan blog.central.is.

Vil ég taka það fram að höfundar textanna eru allir 90 módel.

Sem þýðir einu ári yngri en ég. Ég vil halda því fram að þetta sé árgangur sem er staðnaður í þroska. Fyrir utan Furðu kannski.

Kv.

Aulinn sem er með risa heila.

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

"fyrir utan furðu" .. þekkirðu einhverja sem heitir furða?

það er mjög sérstakt en samt mjög flott nafn!

4:39 f.h.  
Blogger Unknown said...

Ehemm. Takk fyrir, takk takk.

4:52 f.h.  
Blogger Þarfagreinir said...

*Flissar yfir þekkingarleysi pöpulsins*

4:50 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home