þriðjudagur, mars 21, 2006

Mamma mamma mamma mammma mjá mjá mjá.

Ég er í skólanum að skrópa í leikfimi... omg óþekkur auli! Ég er mun hressari en ég var í gær, sérstaklega eftir kaffihúsaferð okkar Kollu og Lilju Rutar. Kolla fékk númer hjá einhverjum BSI gaur sem segir "þegiðu" asnalega .. eða svo finnst Lilju Rut.

Mamma mín er að fara að stinga mig af til London... þar ætlar hún að kaupa á mig nærföt *klappar ákaft* Eitthvað aðeins meira sexy en snoppy nærfötin (þó þau hafi staðið fyrir sínu). Svo er hún móðir mín ástfangin af manni úti í Danmörku, þar á hann eitthvert gistiheimili.

Ég er samt búin að komast að því að ég hef það bara nokkuð gott.. eða aðstæður bjóða uppá það, það er aðallega ég sem klúðra því.. ég hef kost á góðri menntun en nenni ég að læra? Neeeeeeeiiiiii... Ég á góða vini... ööö ég nenni samt alveg að hitta þá, vona að ég sé ekki að klúðra því. Mér er boðið í bíó, út að borða einstöku sinnum... en ég er samt gölluð, ég verð ekkert hrifin.

Ykkar einlægur auli sem er afskaplega glaður og svangur...

1 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Snoopy RULES! :D
Bannað að skipta honum út :( Nema það sé eitthvað flottara með snoopy ;)

4:25 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home