miðvikudagur, mars 22, 2006

Biturleiki í hámarki.

Ég vaknaði allt of seint í morgun, hljóp út, dett, fer inn í bíl, hleyp inn í skólann, dett næstum, fæ þær fréttir að ég átti ekki að mæta fyrr en klukkan 11.

Ég myrða alla núna já.

En annars er ég óvenju hress, þá miða við aðstæður... og aðstæðurnar eru svona, ég á ekki pening, ég er þreytt, ég þarf að pissa, ég er að svelta, ég er einmana og þá staðreynd að Dorrit ældi á gólfið hjá mér í nótt.. en miða við það er ég hress.

Hress, hress, hress.

En í gær gerði ég svona klukk, en viti menn... datt hel**** síðan ekki út og allt horfið, veit ekki hvort ég nenni að gera það aftur.. og ég sem var svo hnyttin og skemmtileg í því!

Ég bíst við því að flestar kvenkynsverur (ásamt nokkrum karlkynsverum, og kannski eitthverjum hvorukynsverum) horfðu á Sex and the City í gær. Ég veit ekki, en ég er húkkt á þessum þáttum, mér finnst allt verða gott og frábært þegar ég horfi á þá, svo eftir nokkrar mínútur er ég komin aftur til raunveruleikans... Sex and the City er eins og Harry Potter var (og er) á mínum yngri árum. Ég man ekki hvað ég beið lengi fyrir utan gluggan að bíða eftir uglu sem var með bréf til mín: Þú hefur komist inn í Hogwart. En ég var að tala um Sex and the City. Við Kolla vorum að spá í hverjar við myndum vera af þessum stelpum, tókum Laufey og Heklu með í pakkan. Niðurstaðan var svo hljóðandi:

Hekla: Miranda (ekki bara útaf rauða hárinu).

Laufey: Carrie (Alltaf í karlaleit?)

Kolla: Charlotte (Ég veit ekki alveg, en enginn af hinum kemur til greina)

Og svo lokst ég: Samantha. "Beta þú værir sko pottþétt Samantha" (Ég veit ekki, aldrei er ég með eitthverja fola inni hjá mér í skemmtilegum ástarleikjum. Ekki fer ég út að skemmta mér á flottum skemmtistöðum hvert kvöld...)

Á tímabili töluðum sögðum við Hekla að við værum eins og Sex and the City... without the sex... það hefur þó aðeins breyst í gegnum tíðina... en samt ekki. Búhúhúhúhú.

Ég hugsa að þetta sé nóg í bili.

(Ætti ég að reyna að vera alveg eins og Samantha? Ég meina, ég er að verða blond... ég ætla samt ekkert í ræktina skohh!... finnið fola handa mér)

Ykkar einlægur,

Auli sem ætlar að fara að pissa núna.. húrra.

2 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Hvort sem þú viðurkennir það eða ekki þá veðuru í strákum stelpa... Það er það sem geirir þig eins og samantha !

sammt skondið verð ég að segja

4:29 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég Miranda og Laufey alltaf í karlaleit ? Það er nú ekki lengra en ellefu klukkutímar síðan þú sakaðir okkur um að vera lessur! Jasvei... en ég er farin í líkamsrækt.. aftur.. hahaha

12:06 e.h.  

Skrifa ummæli

<< Home