laugardagur, apríl 08, 2006

Heilsu auli.

Allt í lagi. Ég var að taka stóra ákvörðun. Ég er hætt að reykja. Ég get ekki meira. Ég er byrjuð að hósta eins og gamall karl... núna verður það heilsan númer 1,2 og 3. Spellt brauð, grænmeti og ávextir.

En stangast þetta ekki á við lífsstíl minn? Reykir Samantha? Núna verð ég ekki lengur reykjandi listatýpan... heldur heilsufríks hnakkinn.. okei kannski ekki hnakki.

En ég fékk afskaplega krúttlegt símtal frá pabba í gær.

Pabbi: Hæhæ, heyrðu ég var á eitthverri matarsýningu um daginn.
Ég: Já?
Pabbi: Og ég fékk svona sápudót að gjöf... og hérna það er eitthvað bath and showergel hérna, hvað er það?
Ég: Það er bara sápa.
Pabbi: Ó. Okei gott að vita. Takk.
Ég: Allt í lagi, bæbæ.
Pabbi: Bæbæ.

....karlmenn... tsss...

En ég er farin að gera eitthvað að viti.... Í fríi !

Kv,

Aulinn sem er orðinn svo healty að það er ógeð.

1 Comments:

Blogger Unknown said...

Mundu bara að afi minn dó úr lungnakrabbameini og gangi þér vel.

9:25 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home