miðvikudagur, mars 29, 2006

Dora the explorer

Okei, þessi þáttur er kannski hálf glataður. Ég lendi þó alltaf í því að horfa á hann... og aldrei hef ég skemmt mér yfir honum fyrr en núna. Það er Gúggífroskur á svæðinu og er hann ótrúlega fyndinn, gulur með gítar, annað þarf ekki. Sko Gúggífroskurinn getur ekki sungið nema hann sé á Gúggíeyjunni, þau eru á leiðinni núna, eru að kaupa miða í bátinn í þessum skrifuðu orðum.

Þessi þáttur er til þess að kenna börnum ensku... "one, two, three" "open" "hello" "dad" "how are you" og svo framvegis, sniðug hugmynd í sjálfri sér. En þessi froskur er samt svo fyndinn! Hoppandi með þennan gítar, litla rassgatið.

Það er stórt skip að klessa á þau! Segiði "Watch out!". Úff þetta var mjótt á mununum... svo er spennandi hvort að Gúggí komist heim. "Runni, sjór, Gúggíeyja".

HANN KOMST HEIM! LITLA DÚLLAN! Sjáum til hvort hann getur sungið. Ohh þau þurfa að hoppa yfir steina, vesen á þessu liði.

KOMA SVO! MÁ ÉG SJÁ GÚGGÍFROSKINN SYNGJA?!

Hmmm... syngdu litla gula vera.

Hann virðist ekki muna... nei þarna kom það! "Gúggí.. gúggíííí.. gúggígígígí.. gúggígígííííí" Frekar einhæft hjá greyinu, en hann er sætur. Og vinir hans eru komnir.

Ég er hætt að vera sorgleg.

Ykkar.

Aulinn sem er.. sorgleg.

(Þetta er voða sætt)