Þið hafið örugglega öll lent í þeim aðstæðum þar sem þið verðið vitni af eitthverju ógeðslegu, s.s. mygluðum mat, sígarettu stubbum í mjólkurglasi, kóngulær og svo framvegis.
Jæja, þið hafið þá örugglega lent í því að vinur, félagi eða jafnvel fjölskyldumeðlimur segir... myndiru borða þetta fyrir 100.000? Milljón? Billjón?
Mitt svar í dag myndir vera:
JÁ! JÁ! JÁ!
Ég skal éta niðurgang afa þíns fyrir 100 kall!
Ég er svo blönk kæru vinir..... svo blönk.
En brátt mun ég fá útborgað, og þá munu Hekla og Beta mála bæinn rauðann.
Því þann 2 júní næstkomandi, sem verður auðvitað 12 að miðnætti eftir laugardagskvöldið... já?
Þá kæru og tryggu lesendur verður nákvæmlega eitt ár síðan við Hekla fórum í okkar fyrsta (formlega) djamm niðrí bæ. Þá skruppum við inná Nelly's og héldum að hann væri "the thing" ... hittum síruhausinn Finn, kysstum nokkra góða menn.
Þetta kvöld skal vera alveg eins fyrir utan að Nelly's er lokaður, Hekla sér um að kyssa mennina... og Finnur.. er hann dauður?
Ég verð samt að segja (Hekla ég veit ég veit) en í dag er 2 mánaðar afmæli mitt og Ara... kongratjúleisjons tú oss.
En ég kveð í bili.
Aulinn sem er andvaka og blankur.
(ég meina þetta með niðurganginn sko)