mánudagur, maí 14, 2007

Komin aftur... Hahh!

Nú er margt búið að gerast síðan ég bloggaði hérna seinast.

Ég er ekki í skóla heldur vinn ég á Hrafnistu (já haha skeina gömlum köllum) og ætla að læra sjúkraliðann næstu önn.

Ég og Ari eru búin að vera saman í rúmt ár núna og gengur of vel (ég veit ekki hvert skuldbindingafælnin í mér fór).

Ég er búin að bæta við mig 10 skópörum síðan ég bloggaði seinast.

Ég bý hjá pabba og er að fara að breyta íbúðinni hans (innlit útlit ala aulinn).

Ég er búin að bæta við mig 4 kílóum síðan ég bloggaði hérna seinast.

Og ég er að mygla í myglaða herberginu hans Ara svo ég verð að fara heim í bað.

Adios!

miðvikudagur, júlí 19, 2006

Minns langar í nýja síðu.

Ég hata blogspot... ég bloggaði svo flott blogg áðan... og það bara hvarf.

Minns langar í nýja síðu.

fimmtudagur, júlí 13, 2006

Ég hlakka svo til!

Þá er það komið á hreint! Við Ari förum til Danmerkur þann 19 ágúst til 26 ágúst. Við ráðum varla við okkur af spenning. Klukkan er bara 11 og ég er nú þegar búin að þurfa að öskra í kodda þrisvar!

Eins og nánir vinir geta séð er að ég ver úti á afmælinu mínu. En ég meina það er hægt að gefa afmælisgjafir seinna.

Svo er verslunnarmannahelgin að fara að koma, við stelpurnar ætluðum til Ak en núna er Kolla kannski að fara til Eyja og Ari vill mig austur... austur? Hmmm... Ég gæti svosem gert það. En hvar mun Hekla vera stödd? Hvað er eiginlega að gera fyrir austan? Ég er bara ekki viss.

Mamma fer til Danmerkur eldsnemma á morgun, við Ari þurfum að skutla henni til þess að fá bílinn... uhuhuhuh.. En svo verðum við ein heima í alveg tvær vikur.

Og já svo eitt .. við Ari erum hætt að borða nammi og gos (haha ég skrifaði gras fyrst).

Og ég er ekki hætt að reykja, svona næstum samt.

Kv

Aulinn sem er of spenntur.

fimmtudagur, júlí 06, 2006

Ég gæti ekki verið sóðalegri núna.

Þar sem ég er að byrja á pillunni vegna þess að smokkar eru drasl er ég ein hormónasprengja... ég var í sakleysi mínu að vafra um á vefnum þegar ég byrja að skoða þessa síðu http://babyanimalz.com/all.htm og er ég öll út grátin eftir að hafa skoðaða hana.

Ég er einnig með pepsí í hárinu... Dorrit hoppaði eitthvað og mér brá allsvakalega.

Svo er ég með kokteilsósu á vinstri geirvörtunni... af hverju? Nú ég veit það ekki, ég var bara að taka eftir þessu.

Ég hlakka til þess að byrja í FB. MS var drasl... en ein pæling, verð ég nokkuð busuð aftur? Ég fékk alveg næga útreið seinast.

En þá horfði ég á Rock star Supernova í gær. Þetta fólk er allt mjög hæfileikaríkt. Magni syngur betur en ég bjóst við... en sviðsframkoman fékk okkur Ara til þess að iða af kjánahrolli. "HOW ARE YOU LIKING ME?!" Aaaa bara við það að skrifa þetta fær mig til þess að vilja hlanda á alla íslendinga vegna lélegrar enskukunnáttu, fyrir utan mig auðvitað.

Og svo vídeoið hans... þar sem hann er eitthvað að röfla um að hanga inni og spila með vinum sínum... þið getið bara skoðað það sjálf, ég ætla ekki að hafa þetta eftir honum.

En annars er ég afskaplega stolt af honum Magna verð ég að segja. Ég meina þetta er rosalegt tækifæri.

En ég ætla að stökkva niðrí banka og leigja mér svo spólu eða eitthvað.

Veriði sæl elskurnar mínar.

Kv,

Aulinn sem er sóði.

miðvikudagur, júlí 05, 2006

Okei okei Ari drap ekki dverghamstur... það hefði samt alveg geta gerst.

En í gær gaf hann mér tvo dverghamstra. Hauk og Ragga. Þeir eru pínulitlir og snöggir og alltof sætir.

Ari verður samt að fara að hætta að gefa mér hluti, ég er orðin alltof dekruð.

Ætti ég að biðja um hund næst? hnjahahaha

En hafiði það gott,

Kv,

Aulinn dverghamstraeigandi.

þriðjudagur, júlí 04, 2006

!

ARI DRAP DVERGHAMSTUR!

föstudagur, júní 30, 2006

Blogspot sýgur.

Gvöð hvað ég sakna emmblog síðanna... þar var allt svo fullkomið. Þetta html kerfi er bara ekki að virka fyrir mig (svo kann ég ekki á það).

Svo sakna ég líka gestapó... *snökt*

Og líka Ara... *brestur í óstöðvandi grát*