þriðjudagur, apríl 11, 2006

Tilgangur lífsins


Ég hef ákveðið að blogga um tilgang lífsins, ég veit ekki hvernig þetta mun fara en reynum þetta.

Við fæðumst, það er nokkuð ljóst. En af hverju fæðumst við? (Já ha ha ha mamma og pabbi gera dónó ég veit). En hvað er það sem gerði okkur að því sem við erum?

Guð skapaði heiminn halda sumir fram. Aðrir trúa á Big Bang hafi komið allri þróun af stað og við séum bara lífverur í þróun. En núna er heimurinn að fara að farast... hvað þá? Hvað verður um okkur? Er alheimurin ein fruma í risastóru dýri í stærri og merkilegri veröld?

Við erum svo lítil og fáfróð. Það eina sem kemst að hjá mér er hvenær ég finn næstu ást, fyllerí og að éta. Ég veit ekki kæru lesendur, allt er svo óljóst.

Ég hef lengi haldið því fram að tilgangur lífsins sé ástin en ég er farin að efast. Kannski eru þetta öll sorglegu lögin sem Kolla sendi mér.... en ég er þreytt. Þreytt á að vera ég.

Klukkan 11:05 22 ágúst 2007 mun ég verða 18 ára og þá mun ég láta mig hverfa. Ekki veit ég hvert. En eitthvert fer ég.

Erum við fullkomin í ófullkomleika okkar? Er sóðaskapurinn okkar bara listrænn? Hví reynum við að tjá okkur svona... ?

Ég veit ekki hver tilgangur lífsins er en ég ætla að komast að honum, kannski kemst ég að honum þegar ég dey sem verður eftir c.a. 3 ár ef marka má spákonur.

Kv,
Aulinn sem er ýkt emo

3 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

það er ekkert verið að minnast á bleiku skóna :O!

10:29 f.h.  
Blogger Unknown said...

Sko, mín kenning er sú að hver einstaklingur lifir oggopínulitlu lífi sem hefur stór og mikil áhrif á líf annars fólks hvar sem er á Jörðinni. Þegar maður hugsar um það þá er mikið til í þessari "fiðrildi blakar vængjunum í frumskógi Amazon og stormur veldur gereyðileggingu hinumegin á jörðinni" kenningu. Sumir lifa stærra lífi en aðrir, en öll höfum við áhrif á líf annarra. Við fáum fólk til að hugsa öðruvísi, haga sér öðruvísi, og þar með haga lífi sínu öðruvísi en það myndi gera ef við þekktum það ekki. Fólk hefur líka áhrif á Jörðina sjálfa, dýrin, plönturnar og allt annað sem lifir og hrærist á Jörðinni. Tilgangurinn með þessari hringrás að mínu mati er einfaldlega að halda hlutunum gangandi, lifa lífinu lifandi og halda lífinu sjálfu lifandi, af því að lífið er ótrúleg og falleg uppfinning, hvort sem eitthvað stærra og öflugra lífsform bjó það til eða við erum bara lífverur sem höfum þróast frá einfrumungi sem spratt allt í einu upp úr einhverri súpu lífrænna efnasambanda fyrir milljónum ára.

Takk fyrir mig.

11:19 f.h.  
Anonymous Nafnlaus said...

Ég held að það sé bara sóðalegt hvað þú heldur að þú sért listræn!

8:21 f.h.  

Skrifa ummæli

<< Home